Austurstræti 16, sem kennt er við Reykjavíkurapótek, var selt á nauðungaruppboði í gær. Gengið var að eina boðinu, sem kom frá slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans og hljóðaði upp á hundrað milljónir króna. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Húsið var í eigu A16 fasteignafélags, sem er alfarið í eigu Karls Steingrímssonar í Pelsinum. Hann hefur átt húsið síðan 1995. Karl hefur frest til 15. febrúar til að reyna að ná samningum um málið til að halda eigninni. Hundrað milljóna kauptilboð Frjálsa fjárfestingarbankans hefur litla þýðingu, enda er bankanum skylt að gefa eftir skuldir sem hvíla á húsinu í samræmi við markaðsvirði þess. Ljóst er að það er miklum mun hærra en milljónirnar hundrað. Karl segist ekki gera sér grein fyrir því hvers virði húsið er í samtali við Fréttablaðið.

Frjálsi fjárfestingarbankinn er með 870 milljóna króna veð í húsinu og er með fyrsta veðrétt ásamt Avant. Nauðungaruppboð á húsinu fór fram í janúar síðastliðnum að kröfu Arion banka, sem á annan veðrétt í eignina. Arion banki bauð 300 milljónir en uppboðið reyndist árangurslaust, enda var kauptilboðið fjarri því að duga fyrir skuldunum við fyrstu veðréttarhafa og því hefði Arion banki ekkert fengið í sinn hlut.