Reykjavíkurborg hefur keypt land í Varmadal, sem staðsettur er við Esjurætur, sem þykir henta vel fyrir uppbyggingu gagnavers þar sem tengivirki Landsnets er þar rétt hjá. Þetta kom fram í máli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra á opnum fundi um fjárfestingu í Reykjavík sem haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur nú í morgun.

Fjár­fest­ing­in nem­ur 312 millj­ón­um króna og svæðið er alls um 180 hekt­ar­ar að stærð, að því er fram kemur á mbl.is . Kveðst Dagur sjá mikil tækifæri á þessu svæði á komandi árum. Hægt sé að þróa þetta sem spennandi atvinnusvæði með áherslu á grænan iðnað.

Þá segir hann greiningu á markaðnum benda til að gagnaver rísi oft með mjög stuttum fyrirvara og því þurfi skipulagið að vera tilbúið.