Reykjavíkurborg hefur fest kaup á 165 ha. svæði af jörðinni Varmadal á Kjalarnesi, en þetta kemur fram á vef borgarinnar . Svæðið þykir henta vel fyrir atvinnustarfsemi eins og t.d. rekstur gagnavers þar sem tengivirki Landsnets er stutt frá.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri greindi frá málinu á opnum fundi um fjárfestingu sem haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur um miðjan apríl. Nú mun hafa verið gengið frá kaupunum og er vinna við deiliskipulag að hefjast.

Kaupverðið er 312 milljónir króna og er seljandi Landey ehf.