Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hefur verið aflýst. Frá þessu er greint á Vísi.is .

Frímann segir í samtali við vísi að nýlegar sóttvarnaráðstafanir, sem gilda til 13. ágúst hið minnsta, hafi sett skipulagningu mótsins í uppnám. Þær fela meðal annars í sér 100 manna samkomuhöft og kröfu um tveggja metra fjarlægðarmörk milli fólks. Fari svo að ráðstafanirnar verði framlengdar segir Frímann ljóst að ómögulegt verði að halda maraþonið. Til að halda fólki ekki í óvissu hafi því verið tekin endanlega ákvörðun um að blása hlaupið af.

Fjögur þúsund manns höfðu skráð sig til leiks í maraþonið í ár. Þau munu geta fengið skráningargjald sitt endurgreitt, óski þau þess. Skráning þeirra muni að óbreyttu færast yfir á næsta ár. Fyrirkomulag endurgreiðslu verður kynnt fljótlega.