Farþegaþota Icelandair á leið frá París til Keflavíkurflugvallar lenti á Gatwick flugvelli við London um klukkan 13.20, eftir að reykur kom upp í farþegarýminu um borð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Flugstjóri vélarinnar slökkti á öðrum hreyfli hennar og lenti skömmu eftir að reyksins varð vart. Um borð voru 148 farþegar sem eru staddir í flugstöðvarbyggingunni á Gatwickflugvelli, ásamt áhöfn vélarinnar.

Icelandair og flugvallaryfirvöld á staðnum munu bjóða þeim farþegum sem kjósa upp á áfallahjálp.