Ólafstún ehf. og Umgjörð ehf. eru nú stærstu einstöku hluthafa í DV eftir hlutafjáraukningu félagsins. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá um miðjan janúar sl. var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 40 milljónir króna.
Ólafstún, sem skráð er með 25,5% hlut DV, er að fullu í eigu Reynis Traustasonar, ritstjóra DV, en var áður í eigu Jóns Trausta Reynissonar, framkvæmdastjóra DV. Reynir var áður skráður fyrir tæplega fjórðungshlut í félaginu á sínu nafni. Jón Trausti er skráður fyrir 1,2% hlut.
Umgjörð er í eigu Ástu Jóhannesdóttur og á um 28% hlut í félaginu. Þá hefur Umgjörð aukið sinn hlut um rúm 9%. Lilja Skaftadóttir, sem var stærsti hluthafinn, á áfram 17,2% hlut í félaginu. Þá kemur Ólafur M. Magnússon, stjórnarformaður DV, inn í eigendahópinn með um 5,3% hlut en Kú ehf., sem einnig er í hans eigu, á 0,6% hlut.
Eignarhaldsfélagið Tryggvi Geir, sem er í eigu Þorsteins Guðnasonar og var stofnað í desember sl., á nú 9,2% hlut í félaginu og kemur jafnframt nýtt inn í hlutahafahópinn.
Eignarhaldsfélagið Arev, sem áður átti 8,2% hlut fer einnig út úr hluthafahópnum.
Athugasemd: Í fyrri útgáfu þessarar fréttar kom fram að Ólafstún væri í eigu Jóns Trausta. Jón Trausti hefur komið þeirri ábendingu á framfæri að félagið sé nú alfarið í eigu föður hans, Reynis Traustasonar. Það leiðréttist hér með.
Hluthafalisti DV og eignarhlutur í prósentum:
- Umgjörð ehf Ásta Jóhannesdóttir - 27,99%
- Ólafstún ehf. - 25,46%
- Lilja Skaftadóttir Hjartar - 17,23%
- Tryggvi Geir ehf. - 9,18%
- Gegnsæi ehf. - 6,57%
- Ólafur M. Magnússon - 5,26%
- Meiriháttar ehf. - 1,45%
- Jón Trausti Reynisson - 1,20%
- Catalina ehf. - 1,19%
- Ingi F. Vilhjálmsson - 0,60%
- Dagmar Una Ólafsdóttir - 0,60%
- Gísli Jónsson - 0,60%
- Innrömmun Sigurjóns - 0,60%
- Kú ehf. - 0,60%
- Hrafn Margeirsson - 0,43%
- Víkurós ehf. - 0,30%
- Elín Guðný Hlöðversdóttir - 0,19%
- María Peta Hlöðversdóttir - 0,19%
- Kolfinna Hagalín Hlöðversdóttir - 0,19%
- Sigríður Sigursteinsdóttir - 0,17%
- Reynir Traustason - 0,00%
- Eignarhaldsfélagið AREV ehf. - 0,00%
Á meðal efnis í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun er :
- Stefnt á allt að tvöföldun Marina-hótelsins
- Kröfuhafar Stoða hafa fengið 16 milljarða
- Arion banki stefnir á frekari erlendar lántökur
- Simmi og Jói tala um viðskiptahliðina á Fabrikkunni
- 100 þúsund bílar skiptu um eigendur árið 2007
- Slitastjórn Kaupþings þarf að greiða japönskum banka sex milljarða
- Verðtryggð lán heimilanna nema 1.300 milljörðum króna
- Kanadamenn kátir með kaup á hluta Icelandic Group
- Starfshópur skilar skýrslu um Íbúðalánasjóð í mars
- Guðjón Már Guðjónsson, framkvæmdastjóri Oz, nýr pistlahöfundur Viðskiptablaðsins, skrifar um hlutverk sprota í hagkerfinu
- Útsölulok auka verðbólguna
- Háskólakennara vantar hvata til að leggja metnað í kennslu
- Stangveiðifélög og veiðiverslanir bjóða upp á hnýtingarnámskeið
- Viðskiptablaðið ræðir við Herwig Lejsek hjá Videntifier Technologies og samning við Interpol
- Það helsta úr VB sjónvarpi í vikunni sem leið
- Óðinn skrifar um ríkiseinokun bankanna
- Leikstjórinn Silja Hauksdóttir ræðir um sjónvarpsþættina Ástríði
- Nærmynd af Katrínu Olgu Jóhannesdóttur, viðskiptafræðing ársins.
- Huginn & Muninn eru á sínum stað auk Týs sem fjallar um Jón Ásgeir og Williams-liðið í Formúlunni
- Þá eru í blaðinu myndasíður, pistlar og margt, margt fleira