Japanska matsfyrirtækið R&I Rating birti í dag fyrsta lánshæfismat sitt á íslenska ríkinu og gaf því einkunnina AA+ sem gildir fyrir skuld¬bindingar í erlendri mynt. Horfur eru sagðar stöðugar. Matið fór fram í tengslum við formlegt og umbeðið mat fyrirtækisins á lánshæfi á Kaupþings banka hf.

R&I Ratings ákvað að meta einnig lánshæfi ríkisins þótt ekki hefði verið um það beðið af hálfu stjórnvalda.