Japanska matsfyrirtækið R&I Rating tilkynnti í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir erlendar skuldbindingar í AA úr AA+.

Vegna þess að ekki er hægt að útiloka frekari aðgerðir til stuðnings fjármálakerfinu í heild hefur R&I einnig sett lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á eftirlit (e. Rating Monitor) fyrir hugsanlega lækkun.

Þetta kemur fram á vef Seðlabankans.

Fréttatilkynningu R&I Rating er hægt að nálgast HÉR.