Richard Howes hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Bakkavör Group og tekur hann við af Hildi Árnadóttur sem hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2004.

Hildur mun sinna sérverkefnum fyrir Ágúst Guðmundsson, forstjóra Bakkavör Group, og Lýð Guðmundsson, stjórnarformann félagsins, ásamt því sem hún mun sitja í stjórnum fyrirtækja þeim tengdum.

Richard Howes hefur starfað hjá félaginu í níu ár, eða frá því hann gekk til liðs við Geest PLC árið 1999 sem Bakkavör tók yfir árið 2005. Hann hefur gegnt mismunandi störfum á fjármálasviði félagsins, nú síðast sem forstöðumaður fjármálasviðs félagsins í Bretlandi. Áður starfaði hann m.a. á fyrirtækjasviði Dresdner Kleinwort Benson í London. Richard er löggiltur endurskoðandi.