Að jafnaði voru 192.400 manns á vinnumarkaði í júlí. Af þeim voru 186.400 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,2%, hlutfall starfandi 82,6% og atvinnuleysi var 3,1%.

Atvinnuleysi hefur minnkað um 1,3 prósentustig frá því í júlí 2012 en þá var atvinnuleysi 4,4%. Atvinnuleysi í júlí 2013 var 3,6% á meðal karla miðað við 5,8% í júlí 2012 og meðal kvenna var það 2,6% miðað við 2,9% í júlí 2012.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegar eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.