Heildarvelta í Kauphöllinni nam rúmum 4,7 milljörðum króna í dag. Velta með hlutabréf nam rétt rúmum 500 milljónum króna sem er frekar lítil velta. Velta með skuldabréf nam hins vegar ríflega 4,2 milljörðum.

Á hlutabréfamarkaði voru mest viðskipti með bréf í HB Granda eða 247 milljóna króna viðskipti. Bréf í fyrirtækinu hækkuðu um 0,90% í þessum viðskiptum. Næst mest viðskipti voru með bréf í Högum en þau námu 107 milljónum króna. Gengi bréfa í fyrirtækinu breyttist ekkert.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,02% og stóð í 1.384,75 stigum í lok dags.

Á skuldabréfamarkaði nam velta með óverðtryggð bréf tæpum 3,1 milljarði króna og ríflega 1,1 milljarða velta var með verðtryggð bréf.