Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,04% í dag og endaði í 1.163,28 stigum. Gengi hlutabréfa Icelandair hækkaði um 0,85%, Össurar um 0,33% og Marels um 0,24%. Gengi bre´fa Sjóvár lækkaði um 1,1%, Regins um 0,99% og HB Granda um 0,79%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 2,2 milljörðum króna, en þar munar mestu um 1.660 milljóna króna sölu Klakka á 200 milljóna króna hlut í VÍS.