Icelandic Water Holdings, sem framleiðir Icelandic Glacial vatnið, og bandaríska flugfélagið AirTran Airways hafa gert með sér samning þess efnis að Icelandic Glacial vatnið verði á boðstólum í öllum vélum félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandic Water Holdings. Samningurinn tekur strax gildi og mun AirTran bjóða Icelandic Glacial vatnið til sölu um borð í öllum vélum sínum, en félagið flýgur yfir 700 flug á degi hverjum til 63 flugvalla í Bandaríkjunum, Mexíkó og Puertó Ríkó

„Við erum virkilega ánægð með að vera í samstarfi við framsækið fyrirtæki á borð við AirTran Airways”, segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður og annar af stofendum Icelandic Water Holdings í tilkynningunni.

„Við erum að leggja áherslu á að gera vatnið sýnilegra í Bandaríkjunum og þessi samningur gerir okkur kleift að komast í beina snertingu við viðskiptavini”.