Búið er að ganga frá kaupum tæknirisans Xerox á Global Imaging Systems fyrir 1.46 milljarða Bandaríkjadala. Um er að ræða þriðju yfirtöku Xerox á einu ári en síðustu fimmtíu og tvær vikur hefur fyrirtækið bæði keypt Amici fyrir 175 milljónir dala og XMPie fyrir 54 milljónir dalar.