Advania hefur undirritað hnattrænt samkomulag Sameinuðu þjóðanna um siðferði og ábyrgð í viðskiptum. Allar starfstöðvar Advania samstæðunnar skuldbinda sig nú til þess að lúta samkomulaginu um aukna samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni.

„Við erum stolt af aðild okkar að þessu samkomulagi sem felur í sér einarða skuldbindingu Advania samstæðunnar hvað varðar sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Í samkomulaginu eru skýr ákvæði sem þarf að uppfylla svo fyrirtæki teljist samfélagslega ábyrg þegar kemur að mannréttindum, réttindum launþega, umhverfismálum og aðgerðaráætlunum gegn spillingu,“ segir Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður markaðsmála hjá Advania á Íslandi.

Advania hefur talsverða reynslu af því að starfa í sátt við samkomulag Sameinuðu þjóðanna. Starfstöð fyrirtækisins í Svíþjóð hefur undanfarin ár byggt sjálfbærnistefnu sína tíu meginreglum samkomulagsins, og gefið út sjálfbærniskýrslu í samræmi við leiðbeiningar Global Reporting Initiative (GRI). Öll fyrirtæki Advania samstæðunnar munu nú í sameiningu gefa út sjálfbærniskýrslu árlega og styðja fjárhagslega við aðgerðir Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði.

„Aðild okkar að samkomulaginu sýnir þann ásetning sem framkvæmdastjórn Advania hefur. Við munum beita okkur fyrir gagnsæi í upplýsingagjöf þegar kemur að sjálfbærni og marka okkur skýra stefnu um mannréttindi og umhverfismál,” segir Sesselía.

Um hnattrænt samkomulag Sameinuðu þjóðanna um siðferði og ábyrgð í viðskiptum

Aðildarfélög samkomulagsins skuldbinda sig til að tileinka sér ákveðna verklagsreglur við stefnumótunarvinnu, sköpun vinnustaðamenningar og í daglegum rekstri. Í dag eru aðildarfélög 9.933 talsins, í 160 löndum. Þessu átaki er ætlað að fá fleiri fyrirtæki til að innleiða og gefa upplýsingar um sjálfbærnimarkmið sem stuðla að sanngjörnum og stöðugum markaði sem mun á endanum leiða til árangursríkara og stöðugra samfélags.