Christy Walton er ríkasta kona Bandaríkjanna samkvæmt lista Forbes yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina.  Er hún ásamt fjölskyldu sinni í 4. sæti listans.

Christy Walton er ekkja John T. Walton, sonar stofnanda Wal-Mart verslunarkeðjunnar sem er 14. stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna.  John lést árið 2005 þá 58 ára að aldri.  Walton fjölskylda á um 40% hlut í Wal-Mart og einnig stóran hlut í orkufyrirtækinu First Solar.

Eignir Christy og fjölskyldu eru metnar á 24. milljarða dala sem gera 2.760 milljarða króna.  Þær hafa hækkað um 10% milli ára eða um 2,5 milljarða dala.