Zhang Yin er ríkasta kona heims samkvæmt lista sem kínverska tímariltinu Hurun Report og The Economist birta á heimasíðu sinni.

Listann má sjá hér .

Nöfn þeirra kvenna sem hafa hagnast af eigin frumkvæði eru á listanum. Yin, sú í efsta sæti, á pappírsverksmiðju í Kína.

Meðal þeirra sem eiga sæti á listanum eru sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey í 9. sæti og J.K. Rowling, höfundur Harry Potter bókanna, í því 20. Þá er Meg Whitman, fyrrverandi forstjóri Ebay í 16. sæti.

Yfir helmingur þeirra sem eru á listanum eru kínverskar konur.