Li Hejun, sem er ríkasti maður Kína, hefur ekki átt sérstaklega góða viku í viðskiptaheiminum. Þannig tapaði hann 15 milljörðum dala, jafngildi tæplega 2.000 milljarða íslenskra króna, í gær þegar gengi hlutabréfa í fyrirtæki hans Hanergy hrundi um 47%. Þetta kemur fram í frétt CNN .

Markaðsvirði fyrirtækisins lækkaði um 18,6 milljarða dala við gengishrunið, en eignarhluti Hejun nemur rúmum 80% í heildina. Gengið tók að hrynja þegar upplýsingar bárust um að tilkynningar væri að vænta frá fyrirtækinu, en óljóst er hvaða upplýsingar tilkynningin átti að bera með sér. Núna einum degi síðar hefur tilkynningin ekki enn borist og klóra menn sér í höfðinu yfir gengishruni fyrirtækisins.

Hlutabréf Hanergy hafa rokið upp í verði síðastliðið ár, eða um 625% í heildina, og þegar mest lét nam virði þess 45 milljörðum dala. Það gerðist fyrir mánuði síðan og skreið Hejun þá upp fyrir Jack Ma, stofnanda Alibaba, yfir ríkustu menn landsins.

Bréfin hafa nú verið tekin úr viðskiptum uns tilkynning berst frá fyrirtækinu.