Ríkið og Reykjavíkurborg munu hefja viðræður sem ætlað er að enda með uppbyggingu nýs þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnu. Hagkvæmasti kosturinn er talinn vera 15 þúsund manna völlur, þá án þaks ef horft er til kostnaðar, en með opnanlegu þaki ef horft er til heildarniðurstöðu.

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að tillögu Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra að hefja viðræður um næstu skref að byggingu leikvangsins sem standist alþjóðlegar kröfur við Reykjavíkurborg.

Viðræðurnar byggja á valkostagreiningu breska ráðgjafafyrirtækisins AFL, en þar var velt upp fjórum mögulegum valkostum, auk viðskiptaáætlunar og mats á efnahagslegum þáttum. Valkostagreiningin var unnin að undirlagi Þjóðarleikvangs ehf., félags sem KSÍ, Reykjavíkurborg og ríkið stofnuðu til að halda utan um verkefnið.

Fyrirtækið telur hagkvæmasta kostinn vera 15 þúsund manna leikvang án þaks, en út frá nýtingu, efnahagslegum áhrifum og vinnsluvirðis sé jafnstór völlur með opnanlegu þaki besti kosturinn. Hins vegar telur félagið hvorki að minniháttar lagfæringar, eða endurbætur á núverandi velli séu fýsilegir kostir.

Möguleikarnir sem velt var upp eru:

  • a. Að núverandi völlur verði að mestu leyti óbreyttur, en ráðist verði í lágmarksendurbætur og -lagfæringar.
  • b. Að Laugardalsvöllur verði endurbættur svo hann uppfylli kröfur og staðla Knattspyrnusambands Evrópu (EUFA) og Alþjóða knattspyrnusambandsins (FIFA).
  • c. Að byggður verði nýr 15.000 manna leikvangur, með opnanlegu þaki eða án þaks.
  • d. Að byggður verði fjölnotaleikvangur með 17.500 sætum, með opnanlegu þaki eða án þaks.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra:

„Laugardalsvöllur var reistur af stórhug fyrir 63 árum og hefur reynst vel – fært þjóðinni ógleymanleg augnablik og skilað íslensku knattspyrnufólki á stærstu úrslitakeppnir í heimi. Hann er hins vegar barn síns tíma og langt frá því að uppfylla viðmið, m.a. um öryggi og aðstöðu vallargesta, aðgengi fatlaðs fólk, aðstöðu leikmanna, dómara og fjölmiðla, hitakerfi o.s.frv. Það er því löngu tímabært að ráðast í byggingu nýs þjóðarleikvangs og ég er vongóð um að hann muni rísa á næstu 5 árum.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra:

„Ég fagna því að málið sé komið á hreyfingu og þetta er rétti tíminn til að hefja undirbúning slíkra framkvæmda. Nú þarf að meta hvernig haga skuli útboði á helstu verkþáttum, t.d. verkefnisstjórn, hönnun og byggingaverktöku, en jafnframt þurfa málsaðilar að semja um mikilvæga þætti eins og eignarhald, fjármögnum. Ég er er fullur bjartsýni um að lending náist í því og að nýr þjóðarleikvangur rísi sem allra fyrst.“