Vínbúðin, sem er í eigu íslenska ríkisins, býður viðskiptavinum sínum nú upp á heimsendingarþjónustu ef pantað er fyrir meira en 50 þúsund krónur eða meira.

Þetta kemur fram á vef Vínbúðarinnar þar sem allir Íslendingar geta skoðað vöruúrval og þjónustu fyrirtækisins en þa er Íslendingum jafnframt auðveldað aðgengi að áfengi þar sem hægt er að versla á síðunni sjálfri.

Heimsendingarnar gilda þó aðeins á höfuðborgarsvæðinu en á vef Vínbúðarinnar kemur fram að varan berist áfengiskaupendum innan sólarhrings ef hún er til á lager.