Fjárframlög ríkisins til Icelandair á síðasta ári til að tryggja lágmarks flugsamgöngur til og frá landinu vegna heimsfaraldurs Covid 19 námu 350 milljónum króna í heildina. Það er nokkru minna en sá hálfi milljarður króna sem heimild var fyrir í samning samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytsisins við Icelandair frá 17. maí á síðasta ári.

Í tilkynningu um málið á vef Stjórnarráðsins er sagt að ekki hafi reynst nauðsynlegt að nýta alla þá fjárhæð því allar tekjur flugfélagsins af flugum hafi komið til lækkunar greiðslunnar.

Flugin sem um er rætt voru frá Keflavík til Boston, London og Stokkhólms, en eftir 27. júní gilti stuðningurinn eingöngu um flug til Boston og gilti hann út árið. Auk þess var gerður sérstakur samningur vegna flugs til Alicante í apríl.

Vildu að Íslendingar gætu komist heim

Jafnframt segir í tilkynningunni að markmið samninganna hafi verið að tryggja mikilvæga farþega- og fraktflutninga til og frá landinu. Í upphafi var það ennfremur gert til að tryggja að íslenskir ríkisborgarar, sem staddir voru erlendis, gætu fundið sér leið heim í upphafi faraldursins.

Fyrsti samningurinn var undirritaður í lok mars og gilti frá 27. mars til 15. apríl. Um var að ræða flug til Boston annars vegar og London og Stokkhólms hins vegar. Annar samningur var gerður í beinu framhaldi um flug til sömu áfangastaða. Sá gilti til 5. maí en var framlengdur til 16. maí.

Þriðji samningurinn gilti frá 17. maí til 27. júní og tók áfram til áfangastaðanna þriggja. Hann var gerður að undangenginni auglýsingu eftir tilboðum á evrópska útboðsvefnum TED (Tenders Electronic Daily). Icelandair var eina flugfélagið sem gerði tilboð.

Í þeim samningi var kveðið á um að hægt yrði að framlengja hann til eins eða fleiri af áfangastöðunum. Endurnýjunarákvæðið var nýtt frá og með 27. júní en aðeins vegna flugs til Boston. Frá þeim tíma hafa samningar eingöngu gilt um lágmarksflug til Boston.

Nýr viðauki var gerður við samninginn í september vegna flugs til Boston út nóvember. Loks var samningurinn framlengdur í lok nóvember til að tryggja lágmarksflug til Boston út árið. Eins og áður segir gerði ráðuneytið  sérstakan viðaukasamning við Icelandair vegna flugs til Alicante í apríl að undirlagi utanríkisráðuneytisins.