Ríkissjóður Íslands hefur eignast 6,26% hlut úi Reitum fasteignafélagi hf. sem áður voru í eigu slitabús Glitnis.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að 47.222.796 hlutir sem voru í eigu Glitnis HoldCo ehf. séu nú komnir í eigu Ríkissjóðs Íslands.

Miðað við gengi bréfa Reita í dag er virði hlutarins um 3,9 milljarða króna virði.