Viðskipti með hlutabréf í Arion banka hf. sem tilkynnt var um í þarsíðustu viku hafa gengið í gegn. Kaupskil ehf. hafa keypt 13% hlut ríkisins í Arion banka og er íslenska ríkið því farið úr hluthafahópi bankans. Jafnframt hefur Arion banki keypt 9,5% af eigin hlutabréfum. Uppgjörsdagur þessara viðskipta var í dag, eða fimm dögum síðar en fyrirhugað var, og breyttist því kaupverð hinna seldu hluta lítillega í samræmi við skilmála samnings Kaupskila og íslenska ríkisins. Fyrir hlut sinn í Arion banka fær íslenska ríkið 23,5 milljarða króna að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Alls 24 íslenskir fjárfestingarsjóðir í rekstri hafa bæst í hluthafahóp Arion banka með samtals 2,54% hlutafjár, en eignarhlutur hvers sjóðs er undir 1%. Tveir hluthafar bankans hafa jafnframt aukið hlut sinn í bankanum, Trinity Investments (Attestor Capital LLP) um 2,0% og alþjóðlegi fjárfestingarbankinn Goldman Sachs um 0,8%. Kaupskil seldu jafnframt um 1,84% af fyrirliggjandi hlut sínum í Arion banka í þessum viðskiptum.

Hluthafar Arion banka hf. sem eiga eignarhlut yfir 1% - 26. febrúar 2018

  • Kaupskil ehf. - 55,57%
  • Trinity Investment Designated Activity Company (Attestor Capital LLP ) - 12,44%
  • TCA New Sidecar III s.à r.l. (Taconic Capital Advisors UK LLP) - 9,99%
  • Arion banki hf. - 9,50%
  • Sculptor Investments s.à r.l. (félag tengt Och-Ziff Capital Management Group) - 6,58%
  • ELQ Investors II Limited (Goldman Sachs International) - 3,37%
  • Að auki eiga 24 íslenskir fjárfestingarsjóðir samtals 2,54% hlut.

Í takt við samþykkt hluthafafundar Arion banka frá 12. febrúar, þar sem samþykkt var að greiða hluthöfum bankans 25 milljarða króna í arð, að frádregnum kaupum á eigin bréfum sem námu 17,1 milljarði króna, mun Arion banki greiða hluthöfum sínum 7,9 milljarða í arð, sem var skilyrtur við sölu Kaupskila á hlut í Arion banka. Arðgreiðslan og kaupin á eigin bréfum eru í samræmi við langtímamarkmiði Arion banka um að minnka umfram eigið fé bankans og er eignfjárhlutfall bankans áfram sterkt og vel yfir kröfum eftirlitsaðila.

Hlutur Kaupskila í arðgreiðslunni, 4,4 milljarðar króna, og söluandvirði 1,84% hlutafjár í bankanum, 3,3 milljarðar, rennur óskipt til íslenska ríkisins sem stöðuleikaframlag, samtals 7,7 milljarðar króna. Alls fær íslenska ríkið því í sinn hlut ríflega 31 milljarð króna vegna þessara viðskipta með hlutabréf í Arion banka og arðgreiðslunnar.