Viðskiptaráð segir rétt að ríkið stígi inn í og bæti fullfrískum starfsmönnum einkafyrirtkja sem þurfi að vera í sóttkví vegna veirusýkingar Covid-19 veirunnar, upp tekjutapið. Annað geti valdið óæskilegum hvata til að brjóta sóttkvínna til forðast tekjutap, og sé ósanngjarnt gagnvart örfáum fyrirtækjum á sama tíma og ríkið ætli að greiða ríkisstarfsmönnum laun í mögulegri sóttkví.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðsins og vísar það í almannahagsmuni, svigrúm ríkissjóðs og þess hve illa sóttkví geti lent á einstaka fyrirtækjum. Jafnframt áréttar ráðið mikilvægi þess að allir lúti leiðbeiningum Landlæknis og annarra stjórnvalda til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, t.d. með því að fara í sóttkví í varúðarskyni og mæta ekki til vinnu.

Í tilkynningu Viðskiptaráðs Íslands segir m.a.:

„Vandinn er að gríðarlega misjafnt er eftir fyrirtækjum hvort og hversu margir þurfa að vera í sóttkví, svo það kemur misilla við þau. Þar að auki, eins og Samtök atvinnulífsins hafa bent á, er atvinnurekendum ekki skylt að greiða laun fyrir fríska einstaklinga sem eru í sóttkví. Þannig getur óæskilegur hvati skapast fyrir fólk, sem ekki getur unnið heiman frá, að mæta til vinnu til að forðast tekjutap, þvert á fyrirskipanir stjórnvalda.

Í ljósi almannahagsmuna, svigrúms ríkissjóðs og þess hve illa sóttkví getur lent á einstaka fyrirtækjum er rétt að ríkið stígi inn í og bæti upp tekjutap fullfrískra starfsmanna sem þurfa að vera í sóttkví. Það er ótækt að öll sú byrði lendi á örfáum fyrirtækjum á sama tíma og lýst hefur verið yfir að bæta eigi upp tekjutap allra ríkisstarfsmanna. Slík aðgerð mun litlu breyta fyrir afkomu ríkissjóðs ef vel tekst að halda veirunni í skefjum – en aðgerðin væri einmitt mikilvægur þáttur í því.“