Ríkissjóður Íslands mun höfða mál gegn sameigendum að Geysissvæðinu í Haukadal til að koma í veg fyrir gjaldtöku af ferðamönnum á svæðinu. Sýslumaðurinn á Selfossi hefur nú þegar hafnað kröfu um lögbann við innheimtu gjaldsins. Hefur ríkissjóður tilkynnt sýslumanni að málinu verði skotið til dómstóla. Verður greinargerð þar um ásamt gögnum afhent héraðsdómi Suðurlands í dag.

Sameigendur ríkisins að svæði við Geysi hafa haft fyrirætlanir um gjaldtöku af ferðamönnum sem fara um það. Fjármála- og efnahagsráðherra fór fram á það við sýslumann að lögbann yrði sett við áformunum. Sýslumaður hafnaði beiðninni 12. mars.

Hluti lands innan girðingar á svæðinu er séreign ríkisins samkvæmt afsali frá 1935. Innan þess eru helstu hverir svæðisins, þ.e. Geysir, Strokkur og Blesi. Landið umhverfis þessa séreign ríkisins er hins vegar í sameign ríkis og félags landeigenda. Ríkissjóður á fyrir utan séreignina u.þ.b 25% í sameignarlandinu með félaginu.

Ríkissjóður hefur lýst sig andsnúinn fyrirhugaðri gjaldtöku sameigenda að landinu við Geysi og bent á að landeigendafélagið geti ekki ráðist í framkvæmdir á séreignarlandi ríkissjóðs né innheimt gjald vegna þess. Innheimta gjalds væri sömuleiðis grundvallarbreyting á afnotum svæðisins og tilgangi frá því sem verið hefur og myndi takmarka afnot af sameignarlandi og séreign íslenska ríkisins.

Sameigendum ríkisins hefur verið boðið að ríkissjóður bæri kostnað af nauðsynlegum framkvæmdum til að tryggja vernd svæðisins og til að kosta rekstur þess og gæslu á því, út árið 2015. Var þetta boðið gegn því að sameigendur féllu frá fyrirhugaðri gjaldtöku og reynt yrði í kjölfarið að ná samkomulagi um framtíðarskipan mála á svæðinu.