Vegna fréttaflutnings af málefnum SpKef í dag vill fjármálaráðuneytið taka fram að hinn nýi sparisjóður, er tók við innistæðum úr Sparisjóði Keflavíkur sem nú er í slitameðferð, er að fullu í eigu ríkisins og unnið er að því að tryggja til frambúðar og með fullnægjandi fjármögnun þá starfsemi sem í hlut á.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins. Verður hagsmuna allra sem hlut eiga að máli gætt sem frekast er kostur.

„Engin ástæða er því fyrir innstæðueigendur að óttast um fjármuni sína. Yfirlýsing stjórnvalda frá haustinu 2008, sem síðan hefur verið ítrekuð af núverandi ríkisstjórn, um að allar innstæður í íslenskum bönkum og sparisjóðum séu tryggðar, er í fullu gildi,“ segir í tilkynningu.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins verður SpKef, sem reistur var á rústum Sparisjóðs Keflavíkur, ekki endurreistur eins og ríkisstjórnin hefur stefnt að. Þess í stað verður innlánum í sparisjóðnum rennt inn í Landsbanka Íslands. Samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins munu einhver útibú SpKef halda starfsemi áfram en þá undir merkjum Landsbankans