Íslenska ríkið hefur samið við Arion banka um kaup á um 38% hlut bankans í félaginu.  Eftir kaupin á íslenska ríkið um 65% hlutafjár Farice en Landsvirkjun 33% og er félagið því alfarið í eigu ríkisins. Kaupverð er 740 milljónir króna. Greint er frá þessu á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins .

Íslenska ríkið hefur skilgreint fjarskiptasambönd til útlanda sem innviði og eru kaupin gerð í ljósi þess. Arion banki varð hluthafi í Farice árið 2010 í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar en þar sem starfsemi Farice er ekki hluti af kjarnastarfsemi bankans, hefur hluturinn verið til sölu síðan þá.

Um Farice ehf.

Farice ehf. var stofnað í nóvember 2002 af íslenska ríkinu og íslenskum og færeyskum fjarskiptafyrirtækjum. Tilgangur fyrirtækisins var að leggja sæstrenginn FARICE-1 sem tekinn var í notkun í janúar 2004. Fimm árum síðar lagði fyrirtækið jafnframt DANICE sæstrenginn til Danmerkur. Farice er langstærsti aðilinn í sölu á samböndum milli Íslands og útlanda. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru fjarskiptafyrirtæki hvers konar og stærri viðskiptavinir gagnavera.