Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Landsvirkjun, Rarik og Orkubú Vestfjarða hafa náð samningum um kaup ríkisins á 93,22% eignarhlut ríkisfyrirtækjanna í Landsneti. Samkvæmt kaupsamningum greiðir ríkið bókfært verð fyrir eignarhlut þeirra sem nemur um 439 milljónum Bandaríkjadala, eða um 63 milljörðum króna.

Orkuveita Reykjavíkur á 6,78% hlut í Landsneti á móti ríkissjóði. Orkuveitan bættist við eigendahópinn árið 2007.

Landsnet var stofnað með lögum 2004 og tók til starfa 2005. Landsnet starfar samkvæmt sérleyfi og gegnir mikilvægu hlutverki á raforkumarkaði, en hlutverk félagsins er flutningur raforku og stjórnun raforkukerfisins.

„Í Orkustefnu til 2050 sem birt var haustið 2020 kemur m.a. fram að hlutlaust eignarhald sé grundvöllur gagnsæis og jafnræðis á raforkumarkaði og því mikilvægt að ljúka eigendaaðskilnaði flutningsfyrirtækisins þannig að það sé í beinni opinberri eigu,“ segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

„Kaup ríkisins grundvallast á þessu sjónarmiði og eru í samræmi við það sem kveðið er á um með nýlegum breytingum á raforkulögum og lögum um stofnun Landsnets.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra:

„Ég er ánægður með að breytt eignarhald Landsnets sé komið til framkvæmda. Það hefur verið víðtæk samstaða um að eignarhald Landsnets sé best komið í beinni eigu ríkisins og/eða sveitarfélaga. Með þessum samningi er stigið fyrsta skrefið í að innleiða þessa breytingu hjá þessu mikilvæga fyrirtæki.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Þessi samningur er mikið fagnaðarefni. Landsvirkjun hefur lengi talað fyrir því að breyta eignarhaldi Landsnets og bent á að það sé óheppilegt að Landsnet, sem hefur einkaleyfi á flutningi raforku og kerfisstjórnun, sé í eigu orkuvinnslufyrirtækja og dreifiveitna. Óbreytt eignarhald samræmist illa meginhugmyndum um aðskilnað samkeppnisreksturs og grunnreksturs á orkumarkaði. Það er ánægjulegt að sjá að þessi breyting hefur nú raungerst.“

Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Rarik:

„Rarik fagnar þessum samningi. Hlutverk á raforkumarkaði verða skýrari og sjálfstæði flutningsfyrirtækisins stuðlar að jafnræði og eðlilegri þróun orkumarkaðar á Íslandi. RARIK og Landsnet hafa átt góð og fagleg samskipti hingað til og svo mun verða áfram.“

Elías Jónatansson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða:

„Eignarhlutur OV í Landsneti hefur á undanförnum árum skapað tekjur sem hafa verið mikilvægur þáttur í rekstrarafkomu Orkubúsins. Með sölunni skapast hins vegar ný tækifæri fyrir Orkubúið að auka fjárfestingar í orkuinnviðum á Vestfjörðum og tryggja þannig Vestfirðingum betur sambærilega stöðu í raforkumálum og aðrir íbúar landsins búa við.“