Ríkið, eigandi Isavia sem rekur flugvelli landsins hefur ákveðið að hlutafé félagsins verði aukið um 15 milljarða króna. Viðskiptablaðið greindi frá því stuttu fyrir jól að ESA hefði heimilað áætlaða hlutafjáraukningu.

Þar með er þetta í annað sinn sem ríkið hefur sett umtalsverða fjármuni í félagið á innan við ári, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá í apríl síðastliðnum setti ríkið þá 4 milljarða í félagið.

Í tilkynningu nú er hlutafjáraukningin sögð styðja við framtíðaruppbyggingu Keflavíkurflugvallar og styrkja samkeppnishæfni hans. Þar með munu mannaflsfrekar framkvæmdir hefjast á þessu ári.

Gengið var frá hlutafjáraukningunni á hluthafafundi Isavia sem haldinn var þann 12. janúar síðastliðinn, en henni er  ætlað að mæta rekstrartapi vegna COVID-19 og eins er hún sögð gera félaginu kleift að hefja vinnu við uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli á ný.

Sögð skapa fjölda starfa

Jafnframt segir í tilkynningunni að ljóst sé að ákvörðunin um að auka hlutafé í Isavia skapi fjölda nýrra starfa á framkvæmdatímanum, þar með talið strax á þessu ári.

„Það er gríðarlega mikilvægt að við verðum reiðubúin þegar flugumferð verður orðin álíka og fyrir heimsfaraldur. Fram að því getum við ráðist í framkvæmdir sem miða að því að gera Keflavíkurflugvöll samkeppnishæfari en áður. Það skilar sér til þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem starfa á flugvellinum, og ferðaþjónustunnar í heild,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.

„Það er ljóst að við hjá Isavia getum lítið gert til að hafa áhrif á það hvenær ferðatakmörkunum í heiminum verður aflétt en við getum haft mikil áhrif á það hvernig okkur reiðir af á komandi árum. Það má ekki gleyma því að hlutafjáraukningin veitir okkur líka svigrúm til að mæta mismunandi sviðsmyndum út úr COVID-19 og á sama tíma auðvelda flugfélögum að hefja flug á ný þegar þar að kemur, m.a. með markaðsstuðningi. Okkur er falin mikil ábyrgð að sinna einum af lykilinnviðum landsins og við ætlum okkur að standa undir þeirri ábyrgð“.

Fyrirhuguðum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli er ætlað að styrkja samkeppnishæfni flugvallarins og tengistöðvarinnar með því að bæta þjónustu við viðskiptavini, bæta aðstöðu flugvéla og farþega, stytta afgreiðslutíma og auka þannig afköst og skilvirkni hans. Áætlanir gera ráð fyrir að þeim framkvæmdum, sem fyrirhugað er að ráðast í að svo stöddu verði að fullu lokið árið 2025.