Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt að veita Icelandair ábyrgð á lánalínu að fjárhæð allt að 120 milljónir dollara, andvirði 16,4 milljarða króna. Ábyrgðin mun nema 90% af lánsfjárhæðinni og er háð samkomulagi aðila um skilmála hennar, samþykki Alþingis og að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár.

Sjá einnig: Icelandair seinkar útboði

Viðræður hafa staðið yfir milli Icelandair Group og íslenskra stjórnvalda, í samvinnu við Íslandsbanka og Landsbankann, í töluverðan tíma. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Sjá einnig: Bjóða fjárfestum um 80% hlut í Icelandair

Tilkynning félagsins í heild sinni:

„Eins og tilkynnt hefur verið um, hafa viðræður staðið yfir milli Icelandair Group og íslenskra stjórnvalda í samvinnu við viðskiptabanka félagsins, Íslandsbanka og Landsbankann, um útfærslu á lánalínu með ríkisábyrgð til félagsins. Íslensk stjórnvöld hafa nú ákveðið að veita félaginu slíka ábyrgð á lánalínu að fjárhæð allt að 120 milljónir Bandaríkjadala (um 16,5 milljarða króna á núverandi gengi). Ábyrgðin mun nema 90% af lánsfjárhæðinni og er háð samkomulagi aðila um skilmála hennar, samþykki Alþingis og að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár.“