© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 19. júlí slíðasliðinn stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 13 0517 fyrir 620 milljónir króna og í RIKB 16 1013 fyrir 112 milljónir króna og því nemur selt magn með uppgjöri 22. júlí í flokknum RIKB 13 0517 alls 7.020 milljónum króna og í flokknum RIKB 16 1013 alls 3.232 milljónum króna að nafnvirði.