Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir að eignir ríkisins verði ekki selda á neinni brunaútsölu meðan hann sé á vakt í fjármálaráðuneytinu. Þetta kom fram á vef Ríkisútvarpsins.
Bjarni segir það ekki vera æskilegt að ríkið haldi stórum hluta bankakerfisins til framtíðar. Ríkið muni vinna að því að losa um eignarhaldið en það muni ekki gerast á einni nóttu.
Bjarni hefur áður gefið það út að hann telji að eignarhald ríkisins á tveimur bönkum ekki vera framtíðarlausn . Samtök atvinnulífsins hafa bent á að um áramót muni ríkið ráða yfir um 70% af bankamarkaði og hvatti til þess að sölu á bönkunum yrði hraðað.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir 30% hlutur í Landsbankanum verði seldur á næsta ári og samkvæmt tillögum kröfuhafa Glitnis mun ríkið eignast 95% hlut í Íslandsbanka sem hluta af stöðugleikaframlagi.