Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi verður gestur Viðskiptaþáttarins á Útvarpi Sögu (99,4) að þessu sinni. Ársreikningur ríkisendurskoðunar liggur nú fyrir og ljóst að starfsemi stofnunarinnar hefur tekið nokkrum breytingum vegna aukinnar áherslu á stjórnsýsluendurskoðun.

Þá mætir Eva Magnúsdóttir upplýsingafulltrúiSímans í þáttinn og segir frá ráðstefnu sem Síminn stendur fyrir næstkomandi mánudag.