Ríkisendurskoðun leggur til að stjórnvöld kanni möguleika á að breyta stofnanaskipan samgöngumála þannig að sjálfstæðri stofnun verði falið að annast alla stjórnsýslu á því sviði. Annarri stofnun verði falin umsýsla allra samgönguframkvæmda og þeirri þriðju að annast rekstur og viðhald samgöngumannvirkja. Óháð slíkum breytingum þarf jafnframt að þróa reglur og aðferðir sem stuðla að hagkvæmari og árangursríkari samgönguframkvæmdum en verið hafa.

Í fréttatilkynningu Ríkisendurskoðunar segir að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar „Samgönguframkvæmdir“ beinist bæði að skipulagi og stjórnun Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar Íslands og að samgönguframkvæmdum þeirra og Flugstoða ohf. Auk þess er horft til hugsanlegra breytinga á stofnanaskipan samgöngumála sem tekur til áðurnefndra stofnana auk Flugmálastjórnar og Umferðarstofu.

Í skýrslunni kemur fram að skipurit Vegargerðarinnar og Siglingastofnunar eru í meginatriðum rökrétt þótt Vegagerðinni hafi ekki gengið sem skyldi að innleiða skipurit sitt. Þá hefur rekstur stofnananna nær undantekningarlaust verið innan fjárheimilda. Báðar hafa stofnanirnar einnig lagt áherslu á að byggja upp gæðakerfi og hefur Siglingastofnun náð því að fá hluta starfseminnar gæðavottaðan.

Á hinn bóginn telur Ríkisendurskoðun að samgönguáætlunum sé breytt of mikið og of ört og komi það niður á markvissum undirbúningi framkvæmda. Þá þurfi að leggja aukna áherslu á að meta og taka mið af arðsemi framkvæmda og halda betur utan um kostnaðaráætlanir á öllum undirbúningsstigum þeirra.

Skýrsluna má lesa í heild hér.