Ríkiskaup segja útboðið með flugsætum til og frá landinu fyrir opinbera starfsmenn ekki hafa skilað tilætluðum árangri og ætla að segja núverandi samningi upp. Hafinn er undirbúningur að nýju útboði. Í síðasta útboði var samið við Icelandair. Stjórnendur Iceland Express töldu tilboð flugfélagsins hins vegar hafa verið betra og kærði málið.

Viðskiptablaðið hefur skrifað ítarlega um útboðið en í blaðinu hefur m.a. komið fram að fyrir hálfum mánuði hafi forsvarsmenn Iceland Express óskað eftir upplýsingum frá Ríkiskaupum  til að meta fjárhagslegt tjón sem félagið hefur orðið fyrir vegna málsins. Í rökstuðningi Iceland Express kemur m.a. fram að starfsmenn þeirra stofnana sem versla í gegnum rammasamninginn kjósi Icelandair þar sem þeir fái vildarpunkta persónulega fyrir ferðirnar.

Í tilkynningu frá Ríkiskaupum í dag segir eftirfarandi:

„Í framhaldi af úrskurði kærunefndar útboðsmála dags. 8. ágúst 2012 í máli nr. 12/2012 Iceland Express gegn Ríkiskaupum, „Flugsæti til og frá Íslandi“ hafa Ríkiskaup ákveðið að una ekki úrskurði nefndarinnar. Ríkiskaup nýta þar með heimild skv. lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup til að höfða mál til ógildingar hans fyrir dómstólum.

Forsaga málsins er sú að í mars 2011 auglýstu Ríkiskaup rammasamningsútboð á flugsætum fyrir starfsmenn ríkisins á ferðalögum erlendis. Tilboð bárust frá tveimur aðilum, Icelandair og Iceland Express. Rammasamningur við bæði félögin tók gildi þann 14. júní 2011.

„Markmið Ríkiskaupa er  alltaf að leita að hagstæðustu kjörum fyrir ríkið. Markmið rammasamningsins um flugsæti er að koma til móts við þarfir kaupenda um hagstæð flugfargjöld og að tryggja nægjanlega tíðni ferða og áreiðanleika þannig að spara megi dagpeninga- og gistikostnað,“ segir Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa.

Útboðið náði til fimm algengra áfangastaða; Kaupmannahöfn, London, Brussel, New York og Boston. Samið var við Icelandair um alla fimm áfangastaðina og við Iceland Express um fjóra af fimm áfangastöðum þar sem félagið bauð ekki flug til Brussel. Samið var til eins árs með heimild til framlengingar tvisvar sinnum í eitt ár í senn.

Á samningstímabilinu hætti Iceland Express að fljúga til Boston og New York þannig að félagið býður nú eingöngu upp á flug til London og Kaupmannahafnar í rammasamningi.

Útboðið er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og var stuðst við fyrirmynd frá Danmörku.

Ljóst er að útboðið hefur ekki skilað tilætluðum árangri og því munu Ríkiskaup nýta uppsagnarákvæði samningsins og hefur honum verið sagt upp með tilskyldum fyrirvara. Hafinn er undirbúningur að nýju útboði.“