Ríkisráð hefur verið kvatt saman á Bessastöðum á morgun klukkan 11.30.

Þar verður væntanlega tilkynnt um breytingar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Stjórnarflokkarnir hafa fundað stíft í dag.

Síðustu daga hafa verið háværar sögusagnir þess efnis að þau Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir séu á leið úr ríkisstjórn. Þá hafa nöfn Kristjáns Möller og Álfheiðar Ingadóttur einnig verið nefnd.

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, formenn stjórnarflokkanna, hafa ekki tjáð sig um breytingarnar.