Rík­is­sak­sókn­ari hef­ur ákveðið að áfrýja sýknu­dómi Héraðsdóms Reykja­vík­ur í máli gegn Ástu Krist­ínu Andrés­dótt­ur hjúkrunarfræðings til Hæstaréttar. Þetta kem­ur fram á vef Rík­is­sak­sókn­ara.

Ásta var ákærð fyr­ir mann­dráp af gá­leysi eft­ir að sjúk­ling­ur lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala á árinu 2012.

Sak­sókn­ari fór fram á að Ásta yrði dæmd í fjög­urra til sex mánaða skil­orðsbundið fang­elsi og til að greiða sak­ar­kostnað upp á 1,2 millj­ónir króna.