Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, að undangengnu samráði við ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins og ríkisstjórn, fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á 13% hlut ríkissjóðs í Arion banka til Kaupskila ehf. (dótturfélags Kaupþings) fyrir 23,4 milljarða króna. Á vef stjórnarráðsins segir að samtals sé áætlaður heildarávinningur ríkisins vegna fjárhagslegra hagsmuna í Arion og samskipta við Kaupþing metinn á ríflega 150 milljarða króna.

Samkvæmt útreikningum Bankasýslunnar er árleg meðalnafnávöxtun ríkisins á hlutafjárframlaginu til Arion banka, allt frá árinu 2008, um 10,8%.

Salan fer fram á grunni kaupréttar á hlutnum samkvæmt hluthafasamkomulagi frá árinu 2009 og lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum en Bankasýslan telur að á grundvelli samkomulagsins hafi Kaupskil einhliða, ótvíræðan og fortakslausan rétt til að kaupa eignarhlut ríkisins.

Í hluthafasamkomulaginu kemur fram að verðið skuli miðast við að hlutafjárframlag ríkisins í bankanum beri ávöxtun sem jafngildir fjármagnskostnaði ríkissjóðs af um 9,9 milljarða króna hlutafjárframlagi að viðbættu 5% álagi á því tímabili sem ríkissjóður var eigandi að hlutum í bankanum. Til frádráttar kaupréttarverðinu komu arðgreiðslur sem ríkissjóður hefur fengið sem eigandi að bankanum á tímabilinu, en þær námu 2,7 ma.kr. Til viðbótar þessum arðgreiðslum fær ríkissjóður nú 23,4 ma.kr. vegna kaupréttarins, eða samtals 26,1 ma.kr.

Bankasýslan aflaði staðfestingar endurskoðunarfyrirtækisins Grant Thornton á útreikningi kaupverðsins samkvæmt kaupréttarákvæðunum.

Með þessum málalyktum er ríkissjóður ekki lengur hluthafi í Arion banka. Stjórnvöld munu áfram gæta hagsmuna ríkissjóðs gagnvart bankanum og sölumeðferðar á honum á grundvelli stöðugleikasamninga. Má í því sambandi nefna að ríkið hefur mikla hagsmuni af farsælli sölu Arion banka því slíkt hámarkar virði afkomuskiptasamnings sem er hluti stöðugleikasamninga. Það er mat stjórnvalda að niðurstaðan sé ríkissjóði hagfelld og að hún samrýmist vel áformum ríkisstjórnarinnar um að draga úr eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum.