Matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í gær að fyrirtækið hefði staðfest langtímaeinkunnir Íslands í erlendum og innlendum gjaldmiðli og  tekið ríkissjóð af gátlista. Horfur eru enn sagðar neikvæðar. „Það að ríkissjóður hefur verið tekinn af gátlista endurspeglar framvindu í endurskipulagningu fjármálageirans, viðunandi framkvæmd Íslands á efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og mun styrkari erlenda stöðu þjóðarbúsins,“ segir Paul Rawkins, framkvæmdastjóri hjá Fitch í Lundúnum samkvæmt frétt á vef Seðlabankans.

Rawkins segir samkvæmt fréttinni að nýleg útgreiðsla á láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í tengslum við efnahagsáætlunina, auk viðbótargreiðslna í tengslum við tvíhliða samninga við Norðurlöndin að fjárhæð 300 milljónir evra, ættu að auka gjaldeyrisforða Íslands í um það bil 3,7 milljarða Bandaríkjadala í lok árs 2009. Að auki munu standa til boða 3,3 milljarðar Bandaríkjadala í tengslum við lánafyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Greiðslubyrði ríkissjóðs af erlendum lánum verði hins vegar óveruleg þar til á síðari hluta ársins 2011, en þá koma á gjalddaga erlend lán ríkissjóðs að fjárhæð 1,3 milljarðar evra.

"Ákvörðunin sem að ofan greinir gefur til kynna áframhaldandi hættu á lækkun lánshæfismatsins. Hún endurspeglar fyrst og fremst það mat Fitch að hægt hefur gengið hjá stjórnvöldum að koma fjármálasamskiptum við umheiminn í eðlilegt horf. Mikilvægur þáttur í þessu samhengi er lausn „Icesave“-málsins, þ.e. tvíhliða samninga við bresk og hollensk stjórnvöld um fjármögnun á endurgreiðslu til innstæðueigenda Icesave-reikninga. Fitch lítur svo á að samþykkt Alþingis á Icesave-samkomulaginu geti verið skammt undan. Hins vegar telur matsfyrirtækið að það geti grafið undan lánshæfi ríkissjóðs ef langan tíma tekur að aflétta gjaldeyrishömlum og koma á stöðugleika í gengismálum", segir í endursögn Seðlabankans á tilkynningu Fitch.