Í tilkynningu frá Seðlabankanum kemur fram að Ríkissjóður Íslands býðst til að leysa til sín skuldabréf sem gefin voru út í evrum og eru með gjalddaga árin 2011 og 2012.

Í tilkynningunni kemur fram að ríkissjóður sé tilbúinn til að kaupa skuldabréf ríkisins í evrum fyrir allt að 300 milljónir evra. Fram kemur að um svæðisbundnar takmarkanir er að ræða hvað þátttöku varðar.