Samkomulag hefur verið undirritað um að Seðlabanki Íslands framselji ríkissjóði kröfur á fjármálafyrirtæki að fjárhæð 345 milljarðar króna. Gegn yfirtöku krafnanna greiðir ríkissjóður 270 milljarða króna með verðtryggðu skuldabréfi til 5 ára, með 2,5 prósent ársvöxtum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. Er þetta gert á grundvelli heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2008 sem samþykkt var á Alþingi 22. desember sl.