„Ég geng,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri spurður um hvaða hreyfingu hann stundar.

Þegar hann er spurður hvort hann fylgi ákveðinni rútinu svarar hann: „Já, bara inn í lyftuna,“ og hlær.

„Án gamans þá reyni ég að ganga í einn til tvo tíma á hverjum degi. Ég geng hér í Reykjavík, ég þarf ekki að fara á Esjuna eða slíkt. Að ganga er fín hreyfing og alhliða, ég næ að hugsa og leysa fullt af málum á göngunni,“ segir hann.

Fjármálaeftirlitið
Fjármálaeftirlitið
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Skúli Eggert annar til hægri.