Verðtryggð ríkisskuldabréf til þrjátíu ára voru gefin út fyrir 8.220 milljónir króna með 2,67% ávöxtunarkröfu.

Þýðir það að tæplega helmingi tilboða var tekið, en tilboð sem bárust námu 15.945 milljónum króna. Bárust 83 tilboð en 49 þeirra var samþykkt.