Í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) um Ísland kemur fram að seðlabankinn telji enn hættu á harðri lendingu efnahags Íslands ef ekki verði settar af stað aðgerðir til að stemma stigu við útþenslu hans.
En fjármálayfirvöld á Íslandi sjá ekki sömu hættuna og segja að bágt ástand á íslenskum mörkuðum fyrr á árinu skýrast af mistúlkun á undirstöðum efnahags landsins, segir í skýrslunni.
IMF segir að seðlabankinn hafi gert sinn hlut og gott betur til að hægja á hagvexti, með vaxtahækkunum undanfarin tvö ár, en ríkisstjórnin hafi ekki minnkað eyðslu nægjanlega.
Þá mun seðlabankinn þurfa að hækka stýrivexti áfram, segir í skýrslunni.