Reglulegur fundur ríkisstjórnarinnar í dag verður haldinn í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram á vefsíðu forsætisráðuneytisins.

Fyrir fundinn mun ríkisstjórnin eiga fund með fund með bæjar- og sveitarstjórum á Suðurnesjum. Að loknum ríkisstjórnarfundinum verður blaðamannafundur. Áætlar forsætisráðuneytið að hann hefjist kl. 11:30.