Í samræmi við verkáætlun ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hefur verið mótuð skýrari stefna í upplýsingamiðlun, bæði hvað varðar framsetningu og innihald.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu en þar segir að starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins hafi á síðustu dögum unnið að því að finna leiðir til að bæta upplýsingastreymi stjórnvalda þar sem lögð er áhersla á gagnsæi og lifandi upplýsingagjöf.

Þetta verði gert með tilkynningum, með fundum, svörun fyrirspurna og miðlun efnis á vefjum stjórnarráðsins. Dagskrá ríkisstjórnarfunda verður gerð aðgengilegri og nú verða blaðamannafundir það sömuleiðis.

Þá kemur fram að uppfærð verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar með ítarefni er aðgengileg í heild sinni á netinu frá og með deginum í dag.

„Verkefnaskráin verður uppfærð eins oft og þörf er og hún gefur öllum kost á að fylgjast með því hvað ríkisstjórnin er að fást við og hvernig verkum hennar miðar,“ segir í tilkynningunni.

Þá verði upptökur af vikulegum blaðamannafundum ríkisstjórnarinnar aðgengilegar í gegnum vefinn. Fundirnir eru haldnir í Þjómenningarhúsinu og þar sitja forsvarsmenn stjórnarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra fyrir svörum.

Allar tilkynningar og yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar eða ráðherra og ráðuneyta má finna á vefjum stjórnarráðsins og viðkomandi ráðuneyta, en upplýsingaveita stjórnvalda er á www.island.is . Þar eru fréttir og ítarefni tengt fjármálavandanum, leiðbeiningar til fólks í vanda og mikilvægir tenglar.

Uppfærð verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar: www.island.is/efnahagsvandinn/adgerdir-stjornvalda/yfirlit-adgerda

Upptökur af fréttamannafundum: www.stjornarrad.is/fyrir_fjolmidla/frettamannafundir

Upplýsingaveita stjórnvalda á ensku: www.iceland.org