Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að haldið verði áfram undirbúningi að smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Ólöf Nordal, nýr innanríkisráðherra lagði málið fyrir ríkisstjórn.

„Innanríkisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti verður falið í samráði við Vegagerðina og Vestmannaeyjabæ að skilgreina og meta hvernig verkefnið verður best fjármagnað og hvaða valkostir séu hagkvæmastir varðandi útboð og eftir atvikum rekstur nýrrar ferju," segir í tilkynningu á vef innanríkisráðuneytisins.

Gert er ráð fyrir að niðurstöðum athugunarinnar verði skilað fyrir 15. febrúar og verður málið þá aftur lagt fyrir ríkisstjórn.

„Í minnisblaði ráðherra kemur fram að umtalsverður olíukostnaður sparist með því að taka í notkun nýja ferju sem gert er ráð fyrir að sigli í Landeyjahöfn árið um kring og að jafnframt lækki mjög kostnaður við dýpun Landeyjahafnar. Með þessu sparast verulegur kostnaður sem fellur til vegna siglinga Herjólfs til Þorlákshafnar og ljóst er að veruleg samgöngubót fyrir Vestmannaeyinga og aðra verður með reglulegum siglingum til Landeyjahafnar. Samtals er gert ráð fyrir að þessir tveir liðir lækki um nálægt 380 milljónir króna á ári miðað við núverandi kostnað með rekstri Herjólfs.

Athugun ráðuneytanna í samráði við Vegagerðina og Vestmannaeyjabæ mun beinast að því hvaða fjármögnunarmöguleikar eru fyrir hendi og er með þessari tillögu vonast til að ýta megi málinu farsællega áfram."