Ríkisstjórnin hefur samþykkt að grípa til sérstakra aðgerða í húsnæðismálum til að auðvelda fólki íbúðakaup, styrkja stöðu íbúðareigenda og efla húsnæðismarkaðinn, samkvæmt tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu.

„Markmiðið er að sporna gegn fjárhagslegum áföllum heimilanna og treysta hagkerfi landsins,“ segir í tilkynningu.

Í samræmi við þetta mun Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra undirbúa eftirfarandi aðgerðir:

Stofnaðir verða tveir nýir lánaflokkar hjá Íbúðalánasjóði til að tryggja fjármögnun íbúðalána banka, sparisjóða og annarra fjármálastofnana. Annar þeirra snýr að endurfjármögnun íbúðalána sem þessar stofnanir veita en hinn að fjármögnun nýrra íbúðalána. Skilyrði lánveitinga í þessum flokkum eru að þær séu til þess fallnar að tryggja öryggi og framboð lána og eðlilega verðmyndun á íbúðamarkaði.

Brunabótamatsviðmið lánveitinga Íbúðalánasjóðs verður afnumið en þess í stað miðað við allt að 80% af kaupverði eigna. Þessi breyting miðar að því að liðka fyrir viðskiptum með minni eignir á höfuðborgarsvæðinu.

Hámarkslán Íbúðalánasjóðs verða 20 milljónir króna í stað 18 milljóna.

Heimildir til leiguíbúðalána Íbúðalánasjóðs á almennum markaði verða auknar til að breyta söluíbúðum í leiguhúsnæði. Slík lán verða þó aðeins veitt að fyrir liggi óháð mat á því að eftirspurn eftir leiguhúsnæði sé fyrir hendi.

Áhersla er lögð á að lánastofnanir komi til móts við fólk í greiðsluerfiðleikum s.s. með frystingu lána, skuldbreytingu eða endurfjármögnun. Stefnt er að því að frumvarp um greiðsluaðlögun verði lögfest á næsta þingi.