Ríkisstjórn Íslands hefur mótað nýja Evrópustefnu sem byggist á efldri hagsmunagæslu á vettvangi samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og annarra gildandi samninga Íslands og Evrópusambandsins.

Í stefnunni er lögð áhersla á skilvirka framkvæmd EES samningsins, m.a. með því að efla samráð innan stjórnsýslunnar og við Alþingi. Áhersla verður á áframhaldandi sjálfstæð, virk og náin samskipti og samstarf við ESB og aðildarríki. Í stefnunni áréttar ríkisstjórnin mikilvægi þess að Ísland komi fyrr að mótun löggjafar á vettvangi ESB.

Á meðal þess sem stefnt er að, er að vinna mat á hagsmunum Íslands af EES samningnum, sem liggi fyrir haustið 2014, í tilefni 20 ára afmælis samningsins. Settur verður á fót samráðshópur m.a. með fulltrúum atvinnulífsins og utanríkisráðuneytis til þess að greina tækifæri innan Evrópu með hliðsjón af núgildandi viðskiptasamningum.

Þá er lagt til að samstarf við Noreg og Liechtenstein á vettvangi EES-samningsins verði eflt og áhersla lögð á áframhaldandi öflugt norrænt og vestnorrænt samstarf til að efla enn frekar hagsmunagæslu á Evrópuvettvangi. Loks er lagt til að tvíhliða samstarf við önnur Evrópuríki verði styrkt, svo sem á sviði öryggismála, viðskiptamála og vísinda og menningarmála.