Ríkisstjórn Íslands mótmælir því harðlega, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í dag, að Evrópusambandið grípi til hótana um að beita þvingunaraðgerðum gegn Íslandi og Færeyjum til að leysa deilur um stjórnun veiða úr sameiginlegum fiskistofnum.

Evrópusambandið hefur samþykkt að beita Færeyinga refsiaðgerðum vegna deilna um síldar- og makrílkvóta. Þá hefur Íslendingum einnig verið hótað refsiaðgerðum.

Ríkisstjórn Íslands segir að háttsemi Evrópusambandsins brjóti í bága við ýmsar skuldbindingar samkvæmt hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna og almennum reglum þjóðaréttar, einkum skuldbindingu strandríkja til að koma sér saman um ráðstafanir sem tryggi vernd og þróun sameiginlegra stofna.

Ríkisstjórninsegir að refsiaðgerðir myndu enn fremur stangast á við skuldbindingar ESB samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) og, að því er Ísland varðar, samkvæmt EES-samningnum.